Þetta verður allt í lagi- áramótaannáll

Uppgjör og breytingar af ýmsu tagi hafa átt sér stað í mínu lífi þetta ár sem nú er að hverfa í aldanna skaut og líklega hefur það einnig verið þannig hjá ykkur mörgum.

Sorg, áhyggjur, stöðnun og erfiðleikar af ýmsu tagi hafa bankað uppá hjá mér þetta blessaða ár, og allt þetta hefur kennt mér að nýta betur það sem ég kann og kenni öðrum, líklega betur en oft áður. Það hefur einnig kennt mér að meta betur það góða sem þó er til staðar í lífi mínu.

Ég hef þurft að hafa fyrir því að halda hugsunum mínum jákvæðum og að halda í ró mína. Hef einnig þurft að passa mig á því að gefast ekki upp en þess í stað einbeitt mér við að treysta Guði og efla von mína.

Ég hef skrifað mig inn í gleðina og hef búið til gæða og glimmerstundir sem hafa eflt hamingju mína þrátt fyrir aðstæður en ekki vegna þess að aðstæður hafi verið svo góðar oft.

Ég hef skoðað sjálfa mig betur og lært betur að meta það hver ég er og fyrir hverju ég stend.

Ég hef misst fólk sem skipti mig máli út úr lífi mínu á þessu ári og það hefur valdið mér sorg og vanlíðan en ég hef valið að meta minningarnar meira en sorgina og gleðja mig við þær.

Ég hef verið svikin og fólk hefur valdið mér vonbrigðum á árinu, en ég hef fyrir löngu lært að það fyrirgefa og bið því fólki einfaldlega blessunar (það er svo gott að leysa málið þannig finnst mér).

Ekki vegna þess að mér geti ekki liðið illa og verið sár, heldur vegna þess að ég veit að oft kann fólk ekki betur og kannski ætlaði það ekki að vera mér vont. Og svo er fyrirgefningin líka bara svo góð fyrir mitt sálartetur svo að ég leyfi nú eigingirninni aðeins að komast að.

Þetta þýðir ekki þó alls ekki að ég láti allt yfir mig ganga!  Ég hef stundum valið að hafa ekki fólk inni í mínu lífi sem ég tel að geti verið mér skaðlegt með einhverjum hætti jafnvel þó að mér þyki vænt um það. Við ættum aldrei að láta bjóða okkur ljóta framkomu eða ofbeldi, hvorki í orði né á borði.

Ég hef lært að sýna þrautseigju og æðruleysi þetta ár sem aldrei fyrr og hef þurft að finna leiðir og lausnir þar sem þær hafa ekki verið svo auðsæjar oft.

Ég hef einnig lært betur en nokkru sinni fyrr að hlusta á innsæi mitt og efla það til muna. Því að það er einfaldlega þannig að við eigum þetta innbyggða GPS tæki sem sýnir okkur réttu leiðirnar og lausnirnar. Oft poppa upp litlar hugarmyndir eða jafnvel persónur í huga okkar sem verið er að benda okkur á. Hlustum á þessar hugarmyndir og rödd hjartna okkar, það reynist oft happadrjúgt.

Þannig að þegar ég set þetta svona niður á blað sé ég að líklega hefur þetta verið afar gott og lærdómsríkt ár eftir allt saman, líklega verið á við mastersklassa gráðu sem ég vona að ég hefi náð með sóma. 

Og þegar allt kemur til alls eru það ekki fyrirhafnarlausu stundirnar sem skapa okkur sem þær dásamlegu persónur sem við erum, heldur þær erfiðu sem kenna okkur að meta hversu ljúft og gleðiríkt lífið er þegar vel gengur (eftir regnið skín sólin sem aldrei fyrr).

Ég óska ykkur elskurnar og bið að árið 2017 verið ykkur gott og glimmerríkt og munið -  

þetta verður allt í lagi allt saman, lífið sér fyrir okkur með einum eða öðrum hætti eins og alltaf þó að lífsstormarnir geysi stundum! 

 

Sjáumst á næsta ári

Ykkar 

Linda


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Linda Baldvinsdóttir

Höfundur

Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir

Samskipta og lífs-markþjálfi (life Coach) Undanfarin ár hef ég unnið við hvatningu og ráðgjöf, haldið fyrirlestra og námskeið ásamt því að skrifa bækur. Hægt er að hafa samband við mig í tölvupósti, linda@manngildi.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ..._s4i6862_2
  • ...0eaf470d6_2
  • ...98009927331
  • pistill mynd
  • 15608665 10210640975833107 554134899 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband