Trúin þín um þig skapar líf þitt

Sumir segjast vera trúlausir og eiga þá líklega við að þeir tilheyri ekki þekktum trúfélögum eða trúarbrögðum, en sannleikurinn er sá að við bregðumst við öllu í lífinu út frá því sem við trúum! 

Við trúum að við séum ekki nægjanleg eða of mikið af einhverju. Við trúum því að við eigum ekki séns á því að ná árangri, eigum ekki skilið að eiga peninga, erum ekki nægjanlega gáfuð, menntuð, ung, gömul eða hver svo sem skilgreining þín er á þér.

Trúarviðhorf okkar til okkar sjálfra eru sem sé einn áhrifaríkasti krafturinn sem mótar tilveru okkar. Þau ákvarða ekki einungis hvernig við sjáum okkur sjálf heldur einnig hvernig við upplifum heiminn og hvernig við tökumst á við áskoranir lífsins.

Með því að skilja og stýra þessum trúarviðhorfum getum við haft ótrúlega mikil áhrif á líf okkar og framtíð.

Frá því að við fæðumst erum við stöðugt að taka við skilaboðum úr umhverfi okkar. Við lærum hvað er talið "rétt" eða "rangt" hvað er verðmætt og hverjar væntingar samfélagsins eru.

Ef við fáum stöðuga hvatningu og jákvæð skilaboð þróum við með okkur jákvætt viðhorf til lífsins og okkar sjálfra. Hins vegar, ef við upplifum gagnrýni, höfnun eða skort á stuðningi getur það leitt til neikvæðra trúarviðhorfa sem síðan valda okkur erfiðleikum á leið okkar um lífið.

Ef við trúum að við séum hæfileikarík og verðug alls góðs leitum við frekar eftir tækifærunum í lífinu og tökum áskorunum fagnandi. En ef við trúum því að við séum óhæf eða óverðug látum við oft tækifærin fram hjá okkur fara og tökum ekki skrefin sem nauðsynleg eru til að ná árangri.

Það góða er að það er hægt að breyta neikvæðum trúarviðhorfum og þróa með sér jákvæðari sýn á sjálfan sig og ég hvet alla til að skoða sjálfan sig og taka síðan þau skref sem nauðsynleg eru til breytinga. Hér eru nokkur skref sem geta hjálpað þér á leiðinni:

Fyrsta skrefið er að verða meðvitaður um þau trúarviðhorf sem stjórna hugsunum þínum og hegðun og eru að gera lífið þitt leitt.

Spurðu síðan sjálfan þig hvort þessi trúarviðhorf sem eru að hefta þig í lífinu séu raunhæf og hvort þau þjóni þér og þínum draumum.

Skiptu svo út neikvæðum viðhorfum fyrir jákvæðari og uppbyggilegri hugsanir.

Endurtaktu jákvæðar staðhæfingar daglega og leitaðu eftir sönnun fyrir eigin verðleikum.

Og svo það mikilvægasta - Umkringdu þig fólki sem styður þig og hvetur þig til vaxtar því að það er ómetanlegt að hafa slíkt fólk í kringum sig, og getur hreinlega skipt sköpum að hafa slíkt fólk í kringum sig þegar gefur á bátinn.

Þegar við breytum trúarviðhorfum okkar opnum við dyr að nýjum og skemmtilegum möguleikum og við verðum sjálfsöruggari, forvitnari og tilbúnari að takast á við áskoranir af öllu tagi.

Jákvæð trúarviðhorf skila sér svo í bættum samskiptum, meiri lífsgleði og auknum árangri í öllu því sem við tökum okkur fyrir hendur.

Nú og svo er ég alltaf aðeins einni tímapöntun í burtu ef þú vilt skoða þín trúarviðhorf með mér og breyta þeim sem þjóna ekki tilgangi fyrir þig í dag.

Þar til næst elskurnar

xoxo

Ykkar Linda

Linda Baldvinsdóttir

Lífsmarakþjálfi og samskiptaráðgjafi

linda@,manngildi.is

 

 


Bloggfærslur 5. júní 2025

Um bloggið

Linda Baldvinsdóttir

Höfundur

Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir

Samskipta og lífs-markþjálfi (life Coach) Undanfarin ár hef ég unnið við hvatningu og ráðgjöf, haldið fyrirlestra og námskeið ásamt því að skrifa bækur. Hægt er að hafa samband við mig í tölvupósti, linda@manngildi.is

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • ..._s4i6862_2
  • ...0eaf470d6_2
  • ...98009927331
  • pistill mynd
  • 15608665 10210640975833107 554134899 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband