10 viskukorn innblásin af Dr. Wayne Dyer

Ég hef alltaf verið afar hrifin af þeirri speki sem Wayne heitinn Dyer boðaði og hef litið á hann sem eina af mínum aðal fyrirmyndum ásamt því að hjarta mitt finnur mikinn samhljóm með hans fræðum. Ég hef þó held ég aldrei skrifað pistil með viskukornunum hans fyrr.

Um daginn sat ég þó í flugvél og hlustaði á hann í rúma 2 klukkutíma á Youtube og ákvað þá að ég ætti að leyfa lesendum mínum að fá agnarlitla innsýn í fræði hans og því varð þessi pistill til.

Ég gæti líklega skrifað tugi pistla um viskukornin hans án þess að ná utan um helming þess sem hann gaf heiminum, en þessi pistill minn er máttlaus tilraun til að koma einhverjum af hans heimspekikornum á framfæri ásamt því að skrifa fyrir neðan mína eigin skýringu eða túlkun á þeim.

 1. "ímyndunarafl þitt rétt eins og líkami þinn vex með æfingunni" -W.D

 Við ættum að æfa huga okkar ekki síður en líkama okkar og velja þær hugsanir og hugarmyndir sem þjóna vellíðan okkar og stækka þannig heillaríka veröld okkar í stað þess að sjá allt það slæma sem í framtíðinni býr og dvelja í ómöguleikavíddum, samsæriskenningum og óvild vegna ímyndaðra óvina og árása á okkur.  

2. "Þú ættir að setja ætlun þína og athygli á það sem þú vilt sjá umpólörast eða breytast" W.D

Allt sem við setjum fókusinn okkar á vex og dafnar. Ef við viljum ná árangri þá er stundum talað um að enginn verði meistari fyrr en eftir 10 þúsund æfingar og líklega er það ekki svo fjarri lagi. Við ættum að halda áfram og áfram að æfa okkur þar til við erum stödd þar sem við viljum vera í lífi okkar, og gefast aldrei upp - sigurinn er alltaf handan við hornið, við þurfum bara slatta af þolinmæði og þrautseigju í farteski okkar og treysta á að útkoman verði sú sem við viljum og eða okkur til heilla.

3. "Í raun, þegar þú loksins kynnist og skilur á náinn hátt heim anda þíns muntu glöggt sjá að öll vandamál eru blekkingar huga okkar vegna þess að við teljum okkur vera aðskilin frá uppruna okkar sem ég kalla Guð, en þú getur kallað hvaða nafni sem er" W.D 

Við höldum oft að við séum aðallega þessi dauðlegi líkami í stað þess að sjá að við erum andlegar verur sem erum að upplifa veraldlega reynslu hér á jörðinni. Allar okkar upplifanir eru forritun á einn eða annan hátt frá heimskerfunum okkar. Þær geta verið samfélagslegar, trúarlegar, menningarlegar og svo framvegis og við efumst sjaldan um að okkar eigin skilgreiningar séu réttar. Þannig munum við einnig vera þar til við förum að skoða með nýrri og víðari sýn heiminn í allri sinni dýrð. Þá loksins þurfum við ekki að aðgreina okkur frá hvert öðru heldur förum að virða og elska hvort annað og annast um. Væri það ekki dásamleg veröld?

4. "Kraftur ætlunar er kraftur kærleikans og þess að taka á móti og þiggja. Það krefst einskis af einum né neinum, það dæmir engan, og það hvetur aðra til að gefa sér frelsi til að vera þeir sjálfir" W.D

Þegar við leyfum kærleikanum að ríkja í hjörtum okkar og tengjum okkur við hann ásamt því að treysta á að útkoman sé góð og gulltryggð þá segjum við bara já takk við lífið. Þá fyrst náum við líka slökum og höfum gaman af því að skoða hvað og hvert lífið mun fara með okkur. Þetta getur verið eins og nokkurskonar óvissuferð um ævintýralendur og það eina sem við þurfum að gera er að segja hvert við viljum stefna, og segja svo bara JÁ og verði svo eða amen á eftir efninu.

5. "Þú getur lært að fara langt útfyrir trúarkerfi þín og markmiðasetningu, á nýjan stað innra með þér: Stað þekkingarinnar. Það er þaðan sem kraftaverkin koma og verða til." W.D

Við höfum öll þessa dásamlegu rödd innra með okkur sem býr yfir allri þeirri þekkingu og visku sem við þörfnumst á leið okkar um lífið og þegar við förum að gefa henni gaum og hlusta náið á það sem hún hefur að segja okkur þá munum við rata réttu leiðirnar og taka réttar ákvarðanir fyrir okkar líf og hamingju. Þannig sköpum við kraftaverkin í lífi okkar og gerum það útfrá réttri þekkingu um okkur sjálf - og af heilu hjarta.

6. “Ef þú ert hreinskilinn, munt þú uppgötva að öll reynslan í lífi þínu var bráðnauðsynleg til að þú kæmist á næsta stað og einnig þann næsta allt fram að þessu augnabliki sem nú er” W.D.

Ég hef talað við fjöldann allan af fólki og spurt hvort að þau hefðu viljað vera án allrar þeirrar reynslu sem líf þeirra bauð uppá og hef alltaf fengið svipað svar: Nei vegna þess að reynslan hefur gert mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Og þannig er það hvort sem reynslan er átakanleg eða falleg þá er það hún sem gerir okkur að þeim persónum sem við erum í núinu. Reynslan hefur gefið okkur tækifæri á því að vaxa og þroskast okkur sjálfum og veröldinni til heilla (vonandi) í flestum tilfellum. Jafnvel hafa það verið sárustu staðirnir okkar sem hafa gefið okkur mestan skilning á mannlegri tilveru og losað okkur undan helsi dómhörkunnar. Svo þökkum fyrir reynsluna, bæðu þá góðu og slæmu og nýtum þroskann til að bæta heiminn í kringum okkur.

7."Það er sérstakt frelsi sem er í boði fyrir þig ef þú ert tilbúinn að taka áhættuna sem fylgir því að öðlast það: En það er frelsið til að reika þangað sem þú vilt um landsvæði lífsins, til að taka einungis allar þínar eigin ákvarðanir." W.D

Það er þetta dásamlega valfrelsi sem við mennirnir höfum sem er svo dýrmætt og ekkert sem í raun sem er gefandi fyrir það að láta það eftir. Að kanna veröldina með augum barnsins sem myndar sér enga skoðun heldur er einungis áhorfandi. Sem tekur sínar eigin ákvarðanir byggðar á því frelsi sem í því felst að hafa ekki fyrirfram gefna skoðun er sú fallegasta gjöf sem manninum hefur verið gefin, og er einnig sú gjöf sem flestir vilja taka frá þér með fyrirfram gefnum viðhorfum samfélagsins. Verðum bara eins og börnin og sjáum dásemdir landsvæða lífsins sem upplifanir án skilgreininga en ekki sem staðreyndir sem við þurfum að hafa alla skoðun heimsins á. Njótum ferðalagsins með okkar eigin augum en ekki annarra. 

8. "Breyting er erfið. Ef þú ert eins og flest fólk er þá muntu streitast á móti því að vinna það erfiða verk að útrýma þeim hugsunum sem eru að styðja við sjálfsskaðandi tilfinningar og hegðun þína.". W.D

Þetta hef ég því miður allt of oft séð gerast. Við höldum í okkar tortímandi hugsun og hegðun frekar en að leggja á okkur þá vinnu sem felst í því að byggja okkur betri framtíð með því að eyða út öppum sem eru að eyðileggja fyrir okkur lífið á margan hátt. En vinnan sem felst í því að "forrita" sig í rétta átt til heilla er tímafrekt og krefst meðvitundar og þrautsegju, en verðlaunin eru einnig mjög góð og allrar vinnunnar virði. Betra líf, hugsanir sem eru styðjandi, uppbyggilegar og jákvæðar gefa okkur betri framkvæmdir og betri útkomur og er það ekki það sem við erum í raun öll að leita eftir? En því miður er engin drive through lausn til í þessum efnum, en hinsvegar er fullt af verkfærum til ef þú ert tilbúinn í þessa uppbyggingu.

9. "Frjálsasta fólkið í heiminum eru þeir sem finna hinn innri frið í sjálfum sér: Þeir neita einfaldlega að láta að duttlungum annarra og hljóðlega eru þeir við stjórnvölinn á eigin lífi" W.D.

Það er svo dásamlegt þegar við losnum við að láta aðrar mannverur hafa áhrif á framkvæmdir okkar og hugsun, á þeim stað liggur friðurinn okkar. Við þurfum bara alls ekki að elta hjörðina og höfum fullt leyfi til þess að lifa lífinu á þann hátt sem okkur þykir bestur, þetta er jú okkar leið, okkar líf og okkar uppskera sem í húfi er, og okkur var aldrei ætlað að taka uppskeru okkar úr garði náungans heldur okkar eigin. Svo vöndum okkur við að verða svolítið heyrnarlaus og fara bara okkar leið og tökum uppskeruna úr okkar eigin garði og sjáum bara til þess að hún hæfi því hver við erum innst inni - í okkar innsta kjarna og eðli.

10. " Þegar þú vaknar til þinnar uppljómaða eðlis þá muntu byrja að meta fegurð í öllu sem þú sérð, snertir og upplifir" W.D

Mér finnst við hæfi að þetta sé seinasta setningin hans Wayne Dyer að þessu sinni þar sem að það er einskonar vegvísir fyrir okkur að þegar við erum farin að sjá veröldina sem fallegan gefandi og ævintýraríkan stað. Stað þar sem við sjáum að allt er eitt með öllu og við öll sem byggjum þessa veröld erum samofin í keðju lífsins, það er staðurinn sem gefur okkur sýn á það sem gera þarf fyrir heiminn allan og við höldum af stað með kærleika okkar,von og umhyggju í vopnabúrinu okkar og vonumst svo til þess að sem flestir opni augu sín og verði með okkur á þeirri vegferð. 

 

Þar til næst elskurnar verið góð við hvert annað og ég hvet ykkur eindregið til að kynna ykkur frekar speki Dr. Wayne Dyer sem gefið hefur út ógrynni af bókum og finna má á youtube allskonar fróðleik frá þessum stórkostlega manni sem heimurinn hefði þarfnast nú sem aldrei fyrr. Blessuð sé minning þessa mæta snillings.

Og eins og ætíð er ég einungis einni tímapöntun í burtu.

Ykkar Linda

Linda Baldvinsdóttir

Lifecoach, Samskiptaráðgjafi og TRM 1 og 2.

linda@manngildi.is

 


Hvernig karakter viltu vera?

Á enskunni mynda eftirfarandi setningar orðið "WATCH" eða á íslenskunni "FYLGSTU MEÐ" og ég vona að eftirfarandi skýring á þeim orðum verði til þess að þú lesandi góður verðir meðvitaðri um hversu miklu máli þessi 5 atriði skipta upp á vellíðan þína og útkomu í lífinu sjálfu. 
 
Watch your words
Watch your actions
Watch your thoughts
Watch your character
Watch your heart
 
eða
 
Fylgstu með orðum þínum
Fylgstu með framkvæmdum þínum
Fylgstu með hugsunum þínum
Fylgstu með karakter þínum
Fylgstu með hjarta þínu.
 
Ég ætla nú aðeins að umraða þessum setningum og búa til mína eigin röð sem liti þá svona út.
 
Fylgstu með hugsunum þínum
Fylgstu með hjarta þínu
Fylgstu með orðum þínum
Fylgstu með framkvæmdum þínum
Fylgstu með karakter þínum.
 
Hugsunin er alltaf til alls fyrst og því set ég þá setningu fyrsta.
 
Ekkert hér í heimi væri til án hugsana og ekkert væri hannað, framkvæmt eða skapað ef ekki kæmi til hugsun fyrst.
Þannig að það borgar sig fyrir okkur að hafa gætur á hugsunum okkar og setja inn litla formúlu þar.
 
Sú formúla sem ég nota er sú að ég hugsa mér að alheimurinn sé stöðugt að fylgjast með öllu sem ég hugsa og bregðist síðan við þeim með því að setja inn þá hluti sem ég planta þar, og þessi formúla á einnig við um orðin sem ég segi. Á þau er einnig hlustað svo vöndum okkur vel og setjum út í alheiminn einungis þær hugsanir og orð sem við erum tilbúin til að sjá koma fram í lífi okkar.
 
 
Hjartað okkar er ótrúlega öflugt tæki ef við nýtum okkur að hlusta á það sem það segir og bregðast við samkvæmt því sem við heyrum það segja. En því miður þá er það oft þannig að við erum ekki að hlusta nægjanlega vel á það sem þar er sagt. Við heyrum ekki varnaðarröddina og við heyrum ekki þegar hjarta okkar segir okkur að treysta bara og sýna kærleika og segir okkur jafnvel að bregðast bara alls ekki við eða ganga í burtu frá aðstæðum og fólki sem vill okkur einfaldlega ekki vel. Svo það borgar sig að hlusta á hjartað því að þaðan sprettur allt það góða og eins það vonda.
 
Orð okkar eru öflug bæði til góðs og ills og þau geta byggt upp en þau geta einnig skaðað á margan hátt. Við íslendingar eigum þetta gamla máltæki sem segir að aðgát skuli höfð í nærveru sálar sem er alltaf gott og gilt og gott að hafa í huga áður en við látum frá okkur orð sem geta sært eða skaðað. Ekki þar fyrir að ég veit að við lendum öll á þeim stað á lífsleiðinni að segja orð sem við meinum kannski lítið eða ekkert með en þau orð skilja samt stundum eftir sár sem taka langan tíma að gróa ef þau gera það þá yfir höfuð með tilheyrandi sársauka fyrir þá sem þau bera.
 
Við sjáum allstaðar í kringum okkur fólk sem þjáist vegna orða sem hafa verið sögð og merkilegt nokk einnig vegna þeirra orða sem eru ekki sögð beint heldur óbeint. Útásetningar ýmiskonar og vandlæting í svip og líkamstjáningu geta sett okkur á staði þess að finnast við ómöguleg, vanhæf, heimsk og kannski lítið aðlaðandi svo eitthvað sé nefnt af þeim þáttum sem orðin sögð og ósögð hafa áhrif á hugsanir okkar um okkur sjálf. 
  
Þegar hugsanir okkar, hjarta og orðin okkar hafa sameinast þá koma viðbrögðin okkar fram og við framkvæmum og vonandi sem oftast okkur til góðs. Stundum erum við þó þannig stefnd að við setjum hamlandi og óvinveittar hugsanir af stað sem kveikja á vondum tilfinningum í hjarta okkar og við förum að tala út það sem við einfaldlega kærum okkur ekkert um að sjá í lífi okkar og bregðumst svo við á einhvern hátt sem jafnvel skaðar hagsmuni okkar og samskipti.
 
Þegar svo öll þessi atriði eru tekin saman þá er það þannig að með öllu því sem við framkvæmum erum við að móta karakter okkar smá saman. Svo hver viltu vera og hvað viltu að framkvæmdir þínar segi um þig? Það er þannig að sá sem stöðuglega bregst við á sama hátt myndar venju og venjan myndar karakter hans.
 
Svo pössum vel upp á hugsanir okkar, orð og framkvæmdir því að tíminn vinnur með okkur til góðs eða ills og sá sem stöðuglega vinnur að því að móta karakter sinn með fallegum hugsunum,tilfinningum,orðum og framkvæmdum mun uppskera samkvæmt því að lokum því að allt sem við gefum heiminum af því góða sem við getum fært honum hefur einhverskonar boomerange á hrif líf okkar fyrr eða seinna svo gefumst ekki upp á því að gera gott.
 
 Og eins og ætíð er ég aðeins einni tímapöntun í burtu ef þú þarft á aðstoð minni að halda.
 
Þar til næst elskurnar
xoxo
ykkar Linda
 
Linda Baldvinsdóttir
Lifecoach, samskiptaráðgjafi, TRM áfallafræði 1 og 2
Linda@manngildi.is
 
 

Um bloggið

Linda Baldvinsdóttir

Höfundur

Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir

Samskipta og lífs-markþjálfi (life Coach) Undanfarin ár hef ég unnið við hvatningu og ráðgjöf, haldið fyrirlestra og námskeið ásamt því að skrifa bækur. Hægt er að hafa samband við mig í tölvupósti, linda@manngildi.is

Okt. 2020
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • ..._s4i6862_2
  • ...0eaf470d6_2
  • ...98009927331
  • pistill mynd
  • 15608665 10210640975833107 554134899 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband